Hádegismatur fyrir vinnustaði, eldaður frá grunni

Við sjáum um hádegisverðinn fyrir fleiri en 25 fyrirtæki og stofnanir. Aðalréttur, veganréttur, súpa, salatbar og nýbakað brauð alla virka daga.

Á borðinu á mánudegi. Sýnishorn úr matseðli vikunnar 16.–20. febrúar 2026.

Kjöt eða fiskurSænskar kjötbollur, kartöflumús, sveppasósa, týtuberjasulta
VeganrétturGrænmetisbollur, kartöflumús, sveppasósa, týtuberjasulta
Súpa dagsinsRósakáls- og grænertusúpa
SalatbarFerskur og hollur, paraður við aðalréttinn
Nýbakað brauðBirkifræbrauð

Svona gengur vikan fyrir sig

Einfalt og þægilegt að panta matinn. Sjá hvernig starfsfólk pantar

  1. 1

    Matseðillinn kemur út

    Nýr matseðill í hverri viku. Þau sem eru á póstlistanum fá matseðil næstu viku sendan.

  2. 2

    Starfsfólk velur

    Hver starfsmaður velur aðalrétt (kjöt eða fisk) eða veganrétt og hvaða daga hann verður í mat.

  3. 3

    Pantað á fimmtudegi

    Í síðasta lagi á fimmtudögum er pantaður matur fyrir vikuna á eftir.

  4. 4

    Hádegið mætir

    Maturinn kemur tilbúinn til eldunar eða fulleldaður, ásamt salatbar, súpu og nýbökuðu brauði.

Hvaða lausn hentar ykkar vinnustað?

Við þjónustum þitt fyrirtæki á þinn hátt, hvort sem þú ert með minna teymi eða stórt mötuneyti.

Er eldunaraðstaða á vinnustaðnum?
Hvað eru margir í mat í hádeginu?

Ef þessar lausnir henta ekki má alltaf hafa samband og við finnum lausn sem hentar þínum vinnustað.

Lausn sem hentar ykkur

Mötuneytisþjónusta

Fyrir stærri fyrirtæki og stofnanir með eldunaraðstöðu

Við undirbúum allt hráefni í hádegismat dagsins og gerum hann kláran til að stinga í ofninn eða til annarrar eldunar. Maturinn kemur ásamt eldunarleiðbeiningum og verður þannig eins góður og hugsast getur.

  • Matur klár til eldunar í mötuneyti
  • Keyrt með hráefni á staðinn
  • Starfsmaður í framreiðslu og frágang, ef óskað er
Réttur frá Krydd & Kavíar: salat og fræbuff á dökkum diski

Metnaður í matargerð

Góður hádegisverður er góð starfsánægja. Þess vegna er allt unnið frá grunni hjá okkur, úr gæðahráefnum.

Eldað frá grunni
Við fáum allt hráefni eins ferskt og kostur er og kaupum engin unnin eða háunnin matvæli.
Brauð úr steinofninum
Við bökum öll okkar brauð og þú færð þau nýbökuð á hverjum degi.
Yfir 300 uppskriftir
Fjölbreytni milli daga og vikna, og innihaldsefni réttanna eru birt með matseðlinum.
Skoða eldhúsið

Réttasafnið

Úr 275 vikumatseðlum áranna 2018–2024: 724 útfærslur af aðalréttum, 836 af veganréttum, 254 súpur og 118 brauðtegundir. Leitaðu í safninu og sjáðu hvað hefur verið á borðum.

Opna réttasafnið

Súpurnar sem oftast eru á matseðli

  1. Aspassúpa
  2. Íslensk kjötsúpa
  3. Gúllassúpa
  4. Paprikusúpa
  5. Sveppasúpa
  6. Blómkálssúpa
  7. Brokkolí-cheddar súpa
  8. Gulrótarsúpa
  9. Sellerírótarsúpa
  10. Blaðlaukssúpa
  11. Villisveppasúpa
  12. Ítölsk grænmetissúpa
  13. Sætkartöflusúpa
  14. Kremuð tómatsúpa
Hádegisverður á borðum

Verndum umhverfið

Það er mikilvægt að vernda umhverfið og minnka kolefnisspor fyrirtækja. Við leitum allra leiða til að lágmarka kolefnisspor matarins, bæði með vel ígrunduðum innkaupum og samvinnu við viðskiptavini um að afhenda rétt magn af mat á hverjum degi, þannig að allir gangi saddir frá hádegisverðinum og matarafgangar verði ekki óþarflega miklir.

Komdu í hóp ánægðra viðskiptavina!

Hafðu samband og við finnum lausn sem hentar þér.