Gæði og góð þjónusta

Krydd & Kavíar var stofnað í apríl 2000. Markmið okkar hefur frá upphafi verið að þjónusta mötuneyti fyrirtækja í hádeginu, vanda til verka og bjóða upp á fyrsta flokks hráefni.

Réttur frá Krydd & Kavíar

Markmið og einkunnarorð

Einkunnarorðin sem við höfum í heiðri eru „Gæði og góð þjónusta“. Viðskiptavinir okkar eru meðalstór og stór fyrirtæki og stofnanir sem treysta okkur fyrir því að elda góðan og hollan hádegismat fyrir starfsfólk.

Framúrskarandi fyrirtæki 2017

Áherslur í matargerð

  • Hráefni sem við notum er aðeins frá viðurkenndum birgjum.
  • Við leggjum áherslu á bragðgóðan og næringarríkan mat.
  • Við notum mikið af ferskum kryddum og kryddblöndum án MSG í matargerðina.
  • Brauðin bökum við sjálf úr úrvals korni og fræjum.
  • Grænmeti og ávextir eru ferskir og nýir á hverjum degi.
  • Við störfum eftir manneldismarkmiðum Lýðheilsustöðvar.
  • Við störfum eftir eftirlitskerfi GÁMES.
Meira um eldhúsið

Starfsfólk

Hulda JónsdóttirFjármálastjóri
515-0702hulda@kryddogkaviar.is

Komdu í hóp ánægðra viðskiptavina!

Hafðu samband og við finnum lausn sem hentar þér.