Metnaður í matargerð
Góður hádegisverður er góð starfsánægja. Þess vegna er allt unnið frá grunni hjá okkur til að tryggja að maturinn sé ljúffengur.

Allt eldað frá grunni
Við leggjum mikinn metnað í að hafa matinn eins ljúffengan og hægt er. Ein besta leiðin til þess er að nota gæðahráefni og elda allan mat frá grunni.
Við fáum allt hráefni eins ferskt og kostur er og kaupum engin unnin eða háunnin matvæli. Við erum líklega með eina bestu aðstöðu landsins til að elda góðan og hollan mat og reynslumikið starfsfólk sem hefur metnað til að skila hádegisverðinum í fullum gæðum.

Bakaríið okkar
Bakaríið okkar er einstaklega vel tækjum búið, með steinofna og aðra ofna til að baka fjölbreytt brauð á hverjum degi.
Eins og annar matur frá okkur eru brauðin unnin frá grunni úr gæðahveiti, höfrum og öðru hráefni sem tryggir úrvalsbrauð dag eftir dag. Margar uppskriftir eru í bókinni okkar og við nýtum þær til fulls.

Salatbarinn
Í hverju hádegi fylgir aðalréttinum ferskur salatbar, ljúffeng súpa og nýbakað brauð.
Salatbarinn okkar er fjölbreyttur og paraður við aðalréttinn með nýju fersku grænmeti, ávöxtum og kryddjurtum.

Súpurnar
Við erum sérstaklega stolt af súpunum okkar og leggjum mikinn metnað í að þær dansi við bragðlaukana á hverjum degi. Eins og annar matur frá okkur eru súpurnar unnar frá grunni úr gæðahráefnum.
Við erum með fjölmargar uppskriftir að súpum sem við notum til að hafa sem mesta fjölbreytni.
Súpa dagsins á matseðli vikunnar
Nýtt á hverjum degi
Alla daga er metnaður lagður í að hafa matinn bragðgóðan og fjölbreyttan milli daga og vikna. Við erum með yfir 300 uppskriftir þannig að þú fáir ekki leið á matnum.
Það er engin hætta á að þú vitir hvaða vikudagur er út frá hádegismatnum okkar. Innihaldsefni réttanna eru birt með matseðlinum.
Skoða réttasafniðÁherslur í matargerð
- Hráefni sem við notum er aðeins frá viðurkenndum birgjum.
- Við leggjum áherslu á bragðgóðan og næringarríkan mat.
- Við notum mikið af ferskum kryddum og kryddblöndum án MSG í matargerðina.
- Brauðin bökum við sjálf úr úrvals korni og fræjum.
- Grænmeti og ávextir eru ferskir og nýir á hverjum degi.
- Við störfum eftir manneldismarkmiðum Lýðheilsustöðvar.
- Við störfum eftir eftirlitskerfi GÁMES.
Verndum umhverfið
Það er mikilvægt að vernda umhverfið og minnka kolefnisspor fyrirtækja.
Við leitum allra leiða til að lágmarka kolefnisspor matarins, bæði með vel ígrunduðum innkaupum og samvinnu við viðskiptavini um að afhenda rétt magn af mat á hverjum degi, þannig að allir gangi saddir frá hádegisverðinum og matarafgangar verði ekki óþarflega miklir.
Úr eldhúsinu
Myndir af réttum, salötum og brauði frá Krydd & Kavíar.
Komdu í hóp ánægðra viðskiptavina!
Hafðu samband og við finnum lausn sem hentar þér.
